Hér eru nokkur atriði sem þú ættir að hafa í huga varðandi heimilistrygginguna þína ef þú ert ekki viss um hvort þú ættir að fá þér snjalltækjatryggingu.
Hefðbundin tryggingafélög afskrifa tæki að fullu á 18 – 24 mánuðum. Tryggingafélögin bæta því ekki í öllum tilfellum tækin heldur greiða viðskiptavinum út upphæð í takt við afskriftareglur þeirra.
Svona virka þessar afskriftarreglur: Þú kaupir nýjan iPhone 14 Pro í desember 2022 á 210.000 kr. Þú lendir í því að símanum er stolið í júní 2023. Þá er síminn orðinn 6 mánaða gamall og því ekki nema 157.500 kr virði hjá tryggingafélaginu. (Í júní ári seinna væri síminn þinn ekki nema 78.750kr virði!) Og já, í öllum þessum tilvikum áttu líka eftir að borga sjálfsábyrgð 😉
Einu ári eftir að símtæki er keypt: 157.500 kr - 30.000 kr sjálfsábyrgð = þú færð 127.500 kr bættar.
Tveim árum eftir að símtæki er keypt : 78.750 kr - 30.000 kr sjálfsábyrgð = þú færð 48.750 kr bættar.
Þú þarft ekki að vera snillingur til að átta þig á því að þú getur ekki keypt þér eins iPhone 14 Pro í staðinn fyrir þennan sem var stolið ef þú færð bara 127.500 kr frá tryggingunum eftir 1 ár og 48.750 kr frá tryggingunum eftir 2 ár.
Hjá Viss eru engar afskriftir og þú færð alltaf sambærilegt tæki bætt.
Flestar heimilistryggingar hafa sjálfsábyrgð í kringum 30.000 kr en þessi upphæð er mismunandi eftir því hversu margar tryggingar þú hefur og á hvaða kjörum. Sjálfsábyrgð er sú upphæð af tjóninu sem þú tekur á þig. Oftast er þetta gert upp þannig að tjónaupphæðin sem þú færð greidd frá tryggingafélaginu er lækkuð um 30.000 kall eða sem nemur sjálfsábyrgðinni.
Sjálfsábyrgð hjá Viss er lægst 10.000 kr en fer hæst upp í 19.500 kr. Upphæðin fer eftir verði tækisins þegar þú keyptir það. Sjá nánar í verðskrá.
Þegar þú lendir í tjóni hjá flestum tryggingafélögum áttu á hættu að missa endurgreiðslur eða tjónleysisafslætti í lok árs. Tjón á símtækum eru algengustu tjónin í dag og því góðar líkur á því að brotna símtækið þitt hafi áhrif á það hvort þú fáir endurgreiðslu fyrir tjónleysi á árinu eða þú fáir lægri afslátt á tryggingum á næsta ári.
Hjá Viss ertu alltaf á jafngóðum kjörum þó þú lendir í tjóni.
Heimilistryggingar bæta aðeins þjófnað ef ummerki eru um innbrot (til dæmis brotinn gluggi) eða ofbeldi eða hótun hafi verið beitt. Heimilistrygging hjálpar þér ekkert ef símanum er stolið úr vasanum þínum eða töskunni á förnum vegi.
Viss bætir allan þjófnað, það eina sem við biðjum um er að þú hafir tilkynnt þjófnaðinn til lögreglu innan 7 daga frá atburði.
Ef þú ert svo óheppin/n að lenda í tjóni þá er ekki víst að þú fáir lánssíma í gegnum heimilistrygginguna þína. Geturðu hugsað þér að vera símalaus í nokkra daga? Nei? Ekki við heldur.
Þess vegna lánar Viss alltaf síma meðan þú bíður eftir viðgerð eða útskiptum á farsíma.
Við vitum að þú ert á ferð og flugi út um allt og að síminn fylgir þér hvert sem er. Það skiptir okkur því engu máli hvort skjárinn hafi brotnað í Taj Mahal eða flísunum í Vesturbænum, tryggingin þín er alltaf gild.
Snjalltækjatrygging Viss gildir um allan heim.